Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa

Samtal við konur um heilsu og lífið sjálft. Konur búa yfir mikilli visku og við ætlum læra af hvor annarri með því að deila sögum og reynslu af því sem lífið hefur boðið uppá. Ekki halda þetta verði allt voða formlegt því það er ekki minn stíll. Auk verða heilsuráð og slökunaræfingar frá Gurrý.

Episodes

Apr 5, 2025

48 min

Það var svo gaman að spjalla við Kristu um upphafið af KristaKetó vinsældunum á instagram þar sem hún deilir með okkur ýmsu um mataræðið en hún er á Carnivore með hennar útfærslu, framkvæmdum heima fyrir og ýmsu öðru. 
Ótrúlega hvetjandi hún Krista með einlægri framkomu og það besta er að hún kemur bara dyranna nákvæmlega eins og hún er klædd. 
Það er best að hlusta á þáttinn og fá smá innblástur í lífið. 

Apr 5, 2025

48 min

Mar 29, 2025

18 min

Í þessum þætti fer ég yfir þrjú hagnýt ráð eða leiðir sem hafa hjálpað mér mikið að líða betur og einfalda líf mitt. Þessi ráð koma frá mínum frábæru yogakennurum og yoganáminu mínu hjá Kristbjörgu Elí. 
1: Gera daglegt skipulag, hér erum við að skipuleggja svefn, matmálstima, hreyfinguna og það sem við þurfum að gera á hverjum degi. Skyldur okkar í vinnu og gagnvart fjölskyldu en líka fyrir okkur sjálfar.
2: Ekki taka hlutum eða orðum perónulega án þess að skoða á ég þetta eða er hugurinn minn að rugla í mér núna. Þurfti virkilega að læra þetta og fékk harða kennslu í gegnum td. Biggest Loser og fjölmiðlaumfjöllun í kringum það allt. Góður skóli Takk fyrir það :)
3: Þurfum ekki að hafa skoðanir á öllu eða hlusta á fólk með skoðanir á hlutum sem þau hafa ekki hundvit á. Þvílíkt frelsi að sleppa þessu bara.
 

Mar 29, 2025

18 min

Mar 22, 2025

41 min

Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er algjör snillingur í öllu varðandi mataræðið og það sem er best að útskýra á einfaldan og gagnlegan hátt fyrir okkur. 
Við ræðum um:
Prótein og hvað þau gera fyrir okkur konur.
Hvaða prótein eigum við að velja úr mat.
Inga útskýrir próteinduft, mismunandi tegundir og hvað ber að varast.
Hvað við þurfum mikið af próteinum á dag.
Gagnlegt fyrir allar konur sem vilja bæta eigin heilsu og vera meira upplýstar.

Mar 22, 2025

41 min

Mar 15, 2025

1 hr 6 min

Særún Lúðvíksdóttir er ein af mínum uppáhalds konum en hún æfði hjá mér í mörg ár og við kynntumst vel, en hún steig upp og hjálpaði mér á erfiðum tímum í rekstri líkamsræktarstöðvar sem ég rak Yama Heilsurækt og fyrir það verð ég henni alltaf þakklát. 
Særún segir okkur frá sjálfri sér sem ung einstæð móðir í Keflavík og Njarðvík með tvo syni, Örlyg Aron Sturluson og Elvar Sturluson. Örlygur var alltaf kallaður Ölli og var vel þekktur íþróttamaður fyrir hans einstöku hæfileika í körfubolta. 
Ölli var einungis 18 ára gamall þegar hann lést. Á þessum tíma var Særún með þriggja mánaða gamalt barn. Særún segir okkur frá því hvernig það er að missa barnið sitt og læra lifa með því en hún segir sjálf að það sé lífstíðardómur að missa barn og hún jafni sig aldrei en hafi lært að lifa með sorginni.
Árið 2013 stofnaði Særún Minningarsjóð Ölla: Minningarsjóður Ölla - Forsíða en sjóðurinn styrkir börn til íþróttaiðkunar sem eiga ekki kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða aðstandenda. Sjóðurinn heldur minningu Ölla á lofti með kærleika og stuðningi til þessara barna. 
 

Mar 15, 2025

1 hr 6 min

Mar 8, 2025

44 min

Fórum yfir spurningar frá hlustendum sem voru flestar um dating lífið og samskipti við hitt kynið. 

Mar 8, 2025

44 min

Mar 1, 2025

46 min

Dæja vinkona mín er ein skemmtilegasta kona sem ég þekki. Í þessum þætti ræðum við um vináttuna sem styrktist svo mikið þegar við fórum á sama tíma í gegnum skilnað og hvernig við fórum í gegnum þetta og vandamálin sem við þurftum að takast á við. 
 

Mar 1, 2025

46 min

Feb 21, 2025

38 min

Ræddum um bætiefnin, hvað þarf að taka og er nauðsynlegt að taka inn bætiefni. 
Það sem við fórum yfir:
Þessi fimm frænku: Magnesíum, omega 3, gerla, D-vítamín og fjölvítamín.
Bætiefni fyrir streituna: B-vítamín, magnesíum og fleiri
Bætiefni fyrir líkamsræktina: Kreatín og Glutamine.
Bætiefni fyrir breytingaskeiðið.
 
 
 

Feb 21, 2025

38 min

Feb 15, 2025

1 hr 6 min

Helga Björk er góð vinkona mín og við spjöllum um að það má skipta um skoðun hvað maður ætlar að verða þegar maður er orðin stór, og ræddum stórt skref sem hún tók þegar hún fór í meðferð á Vogi og eftirmeðferð á Vík.
 

Feb 15, 2025

1 hr 6 min

Feb 8, 2025

59 min

Auður Harpa og Gurrý ræða um stefnumóta lífið og hvernig það er að missa mojo-ið sitt og finna það aftur á miðjum aldri.

Feb 8, 2025

59 min

Feb 1, 2025

1 hr 8 min

Inga fræðir okkur á einfaldan hátt um mataræði, hvað við eigum að borða og hvenær en líka hvernig óregla í fæðu hefur áhrif á streitu, líkamsrækt ofl.
Fyrsti þátturinn okkar Ingu saman en alls ekki sá síðasti. 
 
 

Feb 1, 2025

1 hr 8 min

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125