Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa
Samtal við konur um heilsu og lífið sjálft. Konur búa yfir mikilli visku og við ætlum læra af hvor annarri með því að deila sögum og reynslu af því sem lífið hefur boðið uppá. Ekki halda þetta verði allt voða formlegt því það er ekki minn stíll. Auk verða heilsuráð og slökunaræfingar frá Gurrý.
Listen on:
Episodes

Mar 22, 2026
Mar 22, 2026
5 min
Í þessum stutta þætti fer ég yfir 5 einföld atriði sem geta hjálpað þér að borða betur.
Ekki flókið mataræði eða reglur sem er erfitt að fylgja – heldur hlutir sem ég hef séð virka aftur og aftur hjá konum sem vilja líða betur í líkamanum sínum.
Við förum yfir hvernig litlar breytingar, eins og að borða reglulega, fá nægilegt prótein og undirbúa sig aðeins fram í tímann, geta haft meiri áhrif en við höldum.

Mar 15, 2026
Mar 15, 2026
19 min
Í þessum þætti langar mig að tala um eitthvað sem ég sé stundum hjá konum í dag.
Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr. Við vitum hvað við eigum að borða, við vitum að við eigum að hreyfa okkur og passa svefninn – en stundum verður heilbrigður lífsstíll líka að pressu.
Hvernig gerðist það að eitthvað sem átti að láta okkur líða betur varð stundum að öðru verkefni á to-do listanum?
Í þættinum tala ég um hvernig líkaminn bregst við streitu, af hverju einfaldara kerfi virkar oft betur til lengri tíma og hvers vegna stöðugleiki skiptir meira máli en fullkomnun.
Ég deili líka minni reynslu sem þjálfari og hvernig ég set upp æfingar fyrir konur inni á gurry.is, þar sem áherslan er á raunhæfan lífsstíl sem styður lífið – ekki tekur það yfir.
Stundum er lausnin ekki að gera meira.
Stundum er lausnin einfaldlega að gera hlutina aðeins einfaldari.

Mar 7, 2026
Mar 7, 2026
18 min
Við reynum oft að halda áfram þó líkaminn sé að senda merki.
Við vinnum meira.
Hugsum um aðra.
Reynum að vera sterkar.
En líkaminn safnar öllu sem við upplifum – streitu, álagi og tilfinningum sem fá ekki rými.
Í þessum þætti ræðum við hvernig líkaminn talar við okkur þegar eitthvað þarf að breytast, og hvernig heilun byrjar oft ekki í huganum heldur í líkamanum sjálfum.
Við getum hjálpað líkamanum með leiðum sem eru rólegar og það þarf ekki að setja allt á hvolf.

Jun 23, 2025
Jun 23, 2025
25 min
Ég er farin í sumarfrí og við Emilía sendum ykkur kveðju frá Tene, stay strong and healthy og hafðu gaman ❤️❤️

May 26, 2025
May 26, 2025
15 min
Kapha dosha er uppáhalds fólkið okkar 😍
Hlýjasta og traustasta fólkið er með ríkjandi Kapha.
Enn þær þurfa að passa rosalega vel uppá mataræðið og svefninn 🙏

May 16, 2025

May 3, 2025
May 3, 2025
16 min
Öll höfum við allar þrjár Doshur í okkur en oft er ein ríkjandi, þá getur verið gagnlegt að vita af hverju við erum einsog við erum og hvers vegna eitthvað sem hentar vinkonu okkar í mataræði hentar okkur alls ekki.
Skilningur á þessu efni hefur hjálpað mér mikið síðustu 10 árin ég reyni að útskýra þetta á einfaldan og gagnlegan hátt.
Hvaða matur getur hjálpað okkur að halda jafnvægi, hvaða matur gæti komið okkur úr ójafnvægi og athafnir.

Apr 26, 2025
Apr 26, 2025
29 min
Í þessum þætti spjöllum við Inga um endurræsingu líkamans.
Hvaða leið er best að fara og hvenær væri það góð hugmynd eða er líkaminn kannski bara fullfær um að sjá um þetta sjálfur eða getur verið gott að endurræsa kerfið okkar reglulega.
Ef þú upplifir orkuleysi, svefnvandamál, bjúg, meltingartruflanir, þanin kvið eða ofþyngd þá gæti verið að þú þyrftir að hlusta á þennan þátt.
Alltaf í uppáhaldi hjá mér að tala við Ingu um allt mögulegt enda ein sú klárasta og heilsteyptasta kona sem ég þekki í bransanum.
Ofurhelgi Ingu og Gurrý verður 16.-18.maí ef þú vilt vera með okkur.
Ofurhelgi 16.-18. maí hægt að skrá sig hér :)
Instagram Ingu
Instagram Gurrý
Takk fyrir að hlusta og góðar viðtökur ég kann virkilega að meta það, allar ábendingar um umræðuefni má senda mér á instagram.

Apr 19, 2025
Apr 19, 2025
1 hr 2 min
Ingunn Guðbrands er svo ótrúlega skemmtileg og fróð um heilsutengd málefni og hér förum við í hennar sögu og ferðalag í gegnum breytingar í mataræði og hreyfingu.
Í dag lyftir hún þungum lóðum, hleypur og hennar fókus í mataræði er að ná inn nóg af próteinum til að næra líkamann en það hefur ekki alltaf verið þannig. Hún tók stóra U-beygju fyrir rúmum tveimur árum og hefur orkan og árangurinn heldur betur tekið því vel.
Fullt af visku og góðum ráðum.
Mjög mjög ánægð með þetta viðtal þó ég segi sjálf frá og vel þess virði að hlusta í ræktinni, göngutúrnum, bílnum eða bara hvar sem er.

Apr 12, 2025
Apr 12, 2025
8 min
Skilaboð til þeirra sem hafa ekki hreyft sig í einhvern tíma eða eru í vandræðum með mataræðið og eða bæði.
Gef einföld ráð til að byrja vegferðina en oft hindrar það okkur að hefja hana því það er oft sem við höldum að við þurfum að breyta öllu í einu til að ná árangri en það er bara rangt.
tvær venjur sem ætti að vera auðveldar, en gætu gert kraftaverk eða allavega betri líðan og heilsu.
Stuttur þáttur sem þú ættir að hlusta á ef þetta á við þig.


